Færsluflokkur: Bloggar

Varðsvín valdsins gengu of langt, yfirlýsing frá Forna Loftski

 

 

 Mér barst núna áðan yfirlýsing frá Forna Loftski og er mér sönn ánægja að birta hana með fullri ábyrgð minni þar sem ég er svo hjartanlega sammála því að við þurfum beinar aðgerðir.  Það er tímasóun að taka þátt í svindl leikritinu og kjósa.

 Þetta er álit Þorra almennings í landinu

Grípum til aðgerða, Varðsvín valdsins gengu of langt.

Hvenær er  mælirinn fullur? Sérsveitarsvínin eru ofbeldisskepnur. Það ætti flestum að vera ljóst nú. En samkvæmt skoðanakönnunum eru 79% Íslendinga vangefnir kyssarar vöndsins því það er prósentan sem treystir lögruglunni best af öllum stofnunum. Nei, þeir eru löngu gjörsigraðir siðferðislega, farnir af taugum og beita því þessu yfirgengilega ofbeldi, fólk hlýtur að fara að svara fyrir sig með framtíð og velferð barna okkar í huga. Viljum við að þau erfi þjóðfélag þar sem svona górillur ganga lausar. Halda þeir að það hræði fólk frá því að endurtaka leikinn og rísa upp með því að beita svona óhugnanlegum aðferðum til að verja eyðingaröflin sem rústuðu miðbænum okkar.

Stefán PC lögruglustjóri lýgur eins og venjulega, þeir voru heppnir að drepa ekki konuna  sem samkvæmt minni vitneskju þeir margreyndu og tilviljun að þeim tókst það ekki. Það hlýtur að enda með að varðsvín verður líflátið við þessar aðferðir, fólk verður að verja hendur sínar. Þessar ofbeldislögruglur ættu nú að sitja á bakvið lás og slá ákærðar fyrir manndráptilraun. erkHvað segir appelsínugula smáborgarahreyfingin nú? Heldur hún áfram að verja og hylla ofbeldisv ríkisvaldsins sem einn smáborgarinn, Friðrik Þór Guðmundsson kallar stofnanir samfélagsins um leið og sjálfur fjölmiðlafræðingurinn með amerískt púngapróf í dellu kærir spámenn og kraftaskáld þessa lands fyrir ltila Himmler, litla smámenna hjartað í Miðstrætinu. 

Samstarfsmenn og klappstýrur ofbeldisvaldsins hljóta líka að bera ábyrgð eins kvislingarnir forðum.

Stefán litli Himmler veit líka vel að samkvæmt tölfræði Halla Joh. er vonlaust að kæra lögrugluna sem rannsakar sjálfa sig. Eftir ráðleggingar lögfræðinga eftir aðfarirnar í Alþingisgarðinum við trommuuppreisnina kærði engin því það er árangurslaust og þýðir einnig ofsóknir lögrugluyfirvalda. Aumingja kristninginn, krossmaðurinn Jón Geir kom með forræðishyggjurökin að fólkið gæti farið sér að voða sökum eldhættu vegna vatns og rafmagnsleysis. Er þá ef til vill í lagi að rónarnir drepi sig en það verður að bjarga millistéttarkrökkunum frá sjálfum sér sbr. leiðara málgagns valdstjórnarinnar, Morgunblaðursins í dag 16.4.2009? Ekki gerði það neinum skaða að hleypa lífi í dauð hús og götur nema málsvörum verslunar, eyðingar og dauðaneyslunnar. Ég spái því að Þess verður ekki langt að bíða að fólk mæti með keðjusagir heim til Stefáns Lygararuglustjóra og Jóns Geirs, Ragna Árnadóttir þarf líka að svara til saka.Er hún ekki fyrrum gólfmotta BB sem ver ,,heiður" Alþingis með málþófi gegn meirhlutavilja þingsins um lágmarks skref í stjórnarskrármálum sem hið heiðraða þing er búið að hafa yfir 60 ár að breyta? 

 Jafnvel ég vissi ekki að lögruglan væri svona heimsk að bregðast við með svona viðbjóðslegu offorsi að verja stolnar ,,eignir" auðvaldsins, sama liðsins og rændi Evrópu með Icesave.

Ef Lögruglan heldur að þessi sýning sé til að hræða, er það misskilningur, áhrifin eru þveröfug og nú flykkist fólk til liðs við baráttuhreyfinguna.

 Sækjum þá heim með sagirnar, félagar, það eru myndir af þeim ásamt ljósmyndara þeirra á vefsíðu kommúnistadagblaðsins Nei.

Með byltingarkveðjum

Forni Loftski

 

Svo mörg voru þau orð kraftaskáldsins Forna Loftski , megi áhrínisorð hans hrífa.

 

Þorri Almennings


mbl.is Segir lögreglumann hafa beitt harðræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins brosir StóriðjuÖssur

Undanfarið hefur StóriðjuÖssur verið niðurdreginn á ljósmyndum enda löngu gjörsigraður og niðurbrotinn. Hann hangir líklega þarna ennþá vegna fjölskyldutengsla og valdavana eða fíkn. StóriðjuÖssur þjösnast þó áfram með álversfrumvarp fyrir Helguvík því hann er skuldbundinn til að þjóna áfram alþjóðlegum auðhringavinunum, vinnuveitendum sínum. Þótt flestir sjái að álverið í Helguvík verður líklega ekki byggt, nema sem nýr hálfkláraður minnisvarði um skammsynina, drambið og heimskuna í anda tónlistarhússins. Allavega verður þetta álver aldrei starfrækt samanber ástandið á álmörkuðum undanfarið. Það er einnig spurning hvort ríkið eigi fé til að borga fimm til sjö miljarða með starseminni svo örfáir fái vinnu. Atvinnu blekkingar rökin virðast vera í rénum. StóriðjuÖssurinn getur verið dapur, því hann má loks vita að spilltir froðusnakkar eru á útleið. Hvernig er það, getur stórvinurinn hans, Þráinn framsóknarfrekja ekki reddað honum framboðsæti hjá appelsínugula liðinu?
En viti menn, á forsíðu Fréttablaðsins brosir StóriðjuÖssur við hliðina á Óbama. Íslenskur sleikjuskapur hans og botnlaust snobb leynir sér ekki. Síðan er textinn undir kjaftæði um hvað Ísland hafi mikið fram að færa í þeirri blekkingu sem er kölluð endurnýjanlegir orkugjafar. Bullið endar með því hvað Íslendingar séu leiðandi í Nato. Hrægammarnir líti nú meira til norðurslóða fyrir rányrkju framtíðarinnar. Það er bara ennþá allt á fullu í landkynningunni. Spaugilega sorglegt að þeir virðast halda að áróðurinn virki ennþá.
Bullið minnir þó á fyrir hvern heimsóknin á að vera. Aðalvin og bandamann StóriðjuÖssurar sem segist sjálfur hafa hitaveituvætt Ísland, jafnvel fundið upp þessa ægilega umhverfisvænu orkugjafa er hann hefur agiterað fyrir víða um heim í kynnisferðum sínum til að selja sjálfan sig og hugmyndina um þrælabúða Ísland framtíðarinnar. Þetta fyrirbrigði er auðvitað Viðskiptafulltrúi Íslands á Bessastöðum sem hughreysti þjóð og þing hrunhaustið mikla. Það verður að hressa upp á ímyndina með því að baða sig í ljósi Óbama þótt dökkur sé á húð og hár. Ég hlakka svo til heimsóknarinnar að ég get vart beðið.


mbl.is Ráðherra í víking
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðifrétt

Jú það koma líka góðar fréttir eftir að Hrunið kom og bjargaði okkur frá vitleysunni. Afhjúpanir á öllum sviðum samfélagsins undnfarið hafa jafnvel vakið eisinhverja til lífsin. Álgerður er einhver viðbjóðslegasta ráðynja síðari ára, jafnvel skaðlegri en fyrrum íþróttamála ráðynjan sem ennþá situr sem varayfirgrillari firrta vitfirringaflokksins. Álgerður framsóknarfrekja afhenti glæpaklíku Finns Ingólfssonar bankanna og Kárahnjúkahneykslið verður henni til ævarandi skammar. Farið hefur fé betra.
mbl.is 22 ára þingferli Valgerðar lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekta skíthæll

Hér hæfir  kjaftur skel, Rasmussen er ekta skíthæll. Hann hefur valdið Danmerku miklum skaða. Þar má nefna lögrugluofsóknir og ofbeldi gegn Kristjaníu og íbúum þess. Lokun hins opna og friðsamlega hassmarkaðar þar er hefur leitt til blóðugra gengastríða eins og kunnugt er af fréttum. Morðin eru á beinni ábyrgð yfirvalda. Rassmusen mun líklega standa sig vel við að blessa og réttlæta barnamorð NATO í Afganistan eins og táragas á Kristjaníbörn. Það er líka fagnaðrefni að lýðræðis réttarríkið Tyrkland geti aukið morð og pyntingar á Kúrdum með blessun Obama og NATO. Lýðræðisást og mannréttindavitund Tyrkja kom vel fram við það að þeir telja stjórnvöld eiga að ráða og bera ábyrgð á því hvaða fjölmiðlar starfa og hvað birtist í þeim.
mbl.is Rasmussen verður framkvæmdastjóri NATO
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar Fréttir

Þetta eru yndislegar fréttir að byrjað sé að rústa ræningjabönkunum utanfrá. Það er óskandi að þeim takist að rústa eða a.m.k. koma öllu City á annan endann í dag, eins og 1999. Vonandi fá varðhundar valdsins að kenna á því. Þetta er fögur ljósmynd af Lundúnar svartstökkunum. Leikurinn er bara rétt að byrja. Þetta er efnilegt ungt fólk. Líklega verður þetta innblástur hér á skíta Skríplandi til að rústa sýndarveruleika fyrirtækjaræðis stjórnvaldsins og ræningjabælum markaðstrúarinnar. Það mun líklega gerast fyrir þann skrípaleik sem komandi kosningar eru. Ég skora á unga fólkið að grípa til aðgerða og láta ekki traðka á sér eins og fyrri hjarðkynslóðir Skítlands.

PS/ Mörgum er kunnugt að Royal Bank of Scotland var viðriðinn Baugs svínaríið. Hvenær verður mælirinn nú fullur hjá sauðunum sem segjast ekki vera hryðjuverkamenn af því þeir eru ljóshærðir í jakkafötum með bindi og kellingin í þjóðbúningi? Hvílík háðung.


mbl.is Þúsundir mótmæla í London
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Röng þýðing

Að þýða atheists sem heiðingja er algjörlega rangt. Það er sprottið úr þeirri lífseigu bábilju að allir þeir sem ekki eru kristnir séu guð og trúlausir, sama sem heiðingjar. Því miður er orðið ennþá notað um gentile í nýjustu biblíuþýðingunni sem orð yfir þá sem ekki voru gyðingar eða útlendingar. Heiðingjar getur frekar átt við fjölgyðistrúarmenn þótt heiðnir menn sé viðkunnalegra nema það sé virðingarvert að tala um kristningja frekar en kristna menn.
mbl.is Herferð heiðingja á hjólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Félagsráðynjan og félagshyggju forræðisstefnan

Í Kastljósþætti í fyrra eða árið þar áður, var óhugnanlegt að vera vitni að málflutningi núverandi félagsmálaráðynju og fyrrum framsóknarkonu, Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur. Þetta gerðist þegar hún kom upp um sig í rökræðum við Jón Magnússon vegna frumvarps sem hann ætlaði að leggja fram um heimild til að slaka á reykingabanninu með því að leyfa veitingastöðum að hafa afmarkað reykingarými innandyra. Það átti að sjálfsögðu ekki að skylda þá til þess, en bæði vertar og viðskiptavinir ættu að hafa valið, því að reykingar, frekar en aðrir lestir eða nautnir, verða ekki upprættar með tilskipunum að ofan.          Ásta viðurkenndi í ofstæki sínu að næsta skref afskiptastefnu bannsins yrði að banna reykingar í einkarými á heimilum fólks. Hennar helstu mótrök gegn reykingarýmum var að það væri hugsanlegt að konur sem þyrftu að þrífa þar eftirá, væru óafvitandi barnshafandi. Með því að koma nálægt ösku og stubbaleifum gæti þær skaðað fóstrið. Þetta hljómar nú vægast sagt langsótt.          Það var fátt um svör þegar andmælandinn benti réttilega á að í mörgum atvinnugreinum væru höndlað með óholl efni og mikið ryk. Þarf ekki annað en að minnast á nokkrar iðngreinar t.d. í byggingariðnaðinum. Til að komast hjá hræsni þyrfti þess vegna að banna alla þá starfsemi, ef takmarkinu um áhættulaust og fullkomið öryggissamfélag á jörð, á að nást.          Þótt það sé komið úr tísku að ræða um stórfelld mannréttindabrot af völdum reykingabannsins, þarf varla að taka fram að bannið snýst fyrst og fremst um stýringu frekar en svokallaða lýðheilsu. Bara nafnið Lýðheilsustöð hljómar alræðislega og valdssinnað. En stýringarsinnuð valdstjórnin vissi vel að fyrst er tuðað og kvartað, síðan sætta sauðirnir sig við eftir að búið er að venja þá og temja.          En ástæðan fyrir að ég rifja upp þennan hugsunarhátt felagsmálaráðynjunnar er nýjasta útspil hennar sem ekki hefur farið hátt. Nýjasta yfirlýsing Ástu varðandi hugmyndir um persónukjör þar sem hinum fávísu kjósendum yrði treyst til að númera sjálfir framboðslista, ofbauð mörgum.           Hún segir ,,að verði lög um persónukjör samþykkt ætti áður að huga að því að setja inn í þau ákvæði um að jafnræði kynjanna á þingi verði tryggt. Það er ástæða til að hafa áhyggjur nema slíkt ákvæði verði sett inn í lögin. Það þarf að setja slíkan varnagla eins og oft er gert í prófkjörum.” (Mbl. 20/2/09) Eins og annað á að leysa þetta með lögum svo fólk kjósi ekki vitlaust. Því er auðvitað ekki treystandi.          Samkvæmt þessari yfirlýsinug Ástu er ekki hægt að treysta á fulltrýarlýðræðið til að tryggja jafnan hlut kvenna og þess vegna verður að stýra valfrelsi kjósanda með því að setja lög um kynjakvóta eða jafnan hlut kynjanna á alþingi. Þetta er eitt af  hámörkum ósvífnarinnar undanfarið þegar stjórnmálamenn tala niður til og spotta lýðinn í landinu.          Álit Eiríks Tómassonar er að núgildandi stjórnarskrár setji hömlur fyrir svona fyrirfram ofanstýringu og að henni óbreyttri sé ekki heimilt að setja inn ákvæði í kosningalögin um jafna stöðu kynjanna, ef það verður heimilt að bjóða fram óraðaða lista í vor. Til þess þurfi sérstaka heimild í stjórnarskrá því samkvæmt stjórnarskránni geti allir jafnt konur sem karlar boðið sig fram og síðan hafi kjósendur frjálst val til að velja á milli framboðslista og einstakra frambjóðenda án takmarkann, sama á við aðrar hömlur af svipuðum toga við alþingiskosningar. (Mbl 24/2/09)          Ásta er dæmigerð fyrir þau sem eru illa haldin af stjórnlyndissýki yfirráðarsinna er fara offari í afskiptasemi af einkalífi einstaklinganna m.a. með því að setja lög og reglugerðir um alla skapaða sem sjálfskapaða hluti, er spanna flest svið mannlífsins. Svona fólk á ekkert erindi í stjórnmál, þar sem það veldur miklum skaða með öfugsnúningi sínum á hugtakinu frelsi. Þessir hættulegu stýringarsinnar telja sig þó eiga brýnt erindi í stjórnmál sem aumingjagóðir mannvinir er vernda minnimáttar fólkið. Fólkið sem þau sýna á sama tíma mannfyrirlitningu með því að treysta því ekki fyrir sjálfum sér. Allir flokkar virðast hafa svona fólk innanborðs og því er vafasamt að greiða þeim atkvæði sitt.  Ekki kjósa!!!   

Skóli og einelti skrílríkisins

  

           

Reglulega sprettur upp umræða um einelti þar sem skólayfirvöld og kennarar virðast jafnvel eiga hlut að máli, eða bregðast ekki við.

            Eineltis vandamál liggur í því að skólinn skapar skríl. Það liggur í eðli og tilgangi skólans að móta þegna og vinnudýr, viljalausan samræmdan fjölda. Þar má enginn skera sig úr án þess að vera ofsóttur og lagður í einelti þangað til viðkomandi bugast og samræmist stýringu skrílsins. Ellegar ósjálfrátt eða meðvitað velur einstaklingurinn að hafna heimskuhamingjunni er getur kostað það að eiga erfiða lífsbaráttu fyrir höndum ef viðkomandi fyrirfer sér ekki. Frávik eru meinvarp á samhæfðum veruleika skólans.

            Það er óbærilegt að samkvæmt skólaskyldu skuli einleikarar vera neyddir til að umgangast og samlagast skrílnum. Einstaklingar eru til er verða aldrei mótaðir sem meðfærileg og hlýðin vinnudýr. Nú virðast jafnvel framhaldskólarnir ganga út á að mæta á vissum tímum. Fylgja manngerðum tímamælingum og mannasetningum, ímynduðu klukkunni á meðal skýjanna. Annars fæst varla stúdentsprófið.

            Það á ekki að safna maneskjum saman og þröngva þeim til að aðlagast hópmennsku hjarðarinnar. Eitt sinn gaf ég út bók með tilinum Stýrður skríll.

            Ég vitna því óbeint í Dag Sigurðarson að það er forgangsverkefni að afnema skólaskyldu til að verja menntun (manneskjunar) alþýðunnar.

 

Bloggið er byrjað

Bloggið er byrjað 

Eftir töluvert hik er ég loksins byrjaður að blogga á Mogga. Þessi tilraun er gerð af tillitssemi við sumt fólk er ég rekst á, með ætluninni að hlífa þeim við predikunum og pirringsstuði vegna íslenskra einmiðla.

 

Bloggið hefur hingað til aðallega verið vettvangur hinnar sívaxandi íslensku plebbamenningar, þar sem fávísi og fordómar njóta forgangs. Margir íslenskir bloggplebbar eru lýsandi dæmi um að það mætti takmarka kosningarétt með einhverjum hætti.

 

Ætlunin er að á þessum vettvangi muni rödd hins þögla Þorra almennings heyrast í mótvægi við hið tilbúna og ímyndaða almenningsálit, nýjustu markaðs og skoðanakannana.  Hér gæti endurrómast sú margradda rödd almennings eins og hún ætti að hljóma án íhlutunar og stöðugrar skoðanastýringar fyrirtækjaræðisins. Þar að segja eins og undirritaður ímyndar sér almenningsálitið.

 

Einnig munu birtast á þessum vettvangi, Þorri fólks, Þorri þjóðarinnar og jafnvel sjálfur Þorri fjöldans.

  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband