Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Dæmi um gildismat hins sjúka samfélags

Er það einhver furða að fangelsismál eru í ólestri á Íslandi þar sem öllum fjármunum er veitt í frekari öryggsigæslu með niðurlægjandi aðferðum til að upprætta hugvíkkandi- og vímuaukandi efni í þjóðfélaginu og fangelsum. Og frekari glæpamannaframleiðsu með lengri fangelsisdómum þótt það sé ómissandi fyrir kverkatak lögrugluríkisins. Skapa fleiri samfélagsvandamál svo lögruglan geti vælt á meiri fjárveitingu með linnulausri hræðslupólitik. Þótt fjárveitingin hafi aukist um 40% með hervæðingu og ameríkanseringu Ruglunnar á síðustu árum?

Stríðið gegn vissum vímuefnum er stjórntæki lögrguluríksins er byggist á ótta fáfróðs almennings. Halda honum við efnið svo hann sætti sig við Stýringuna og auknu gerræði ríksins á öllum sviðum samfélagsins.
Þessir dómar sýna hvað siðferðis og gildismat þessa helsjúka samfélags er brenglað. Þessir menn hafa ekkert gert nema að reyna að þjóna sívaxandi markaði. Með innflutningi vímuefna sem eru mótefni gegn kúgun lögrugluríkisins er hægt að lina þjáningar hugsandi fólks í glæparíkinu. Ekki er það þolandans sök (stríðsfanganna) að viss vimuefni eru ólögleg vegna pólitískar stýringar eða/og sögulegs slys.
Sakborningarnir eru ólöglegir p'olit'iskir-stríðsfangar eins heimskulegasta stríðs gegn náttúrunni og mannkyninu er þekkist síðan mannskynssagan hófst.

Vímuefnastríðið er stríðsyfirlýsing ríkisvaldsins gegn eigin borugurunum og er enn ein sönnunin um hvurslags skrímsli ríkisvald er og verður.

Þetta minnir okkur á að krafan um fullveldi einstaklingsins er skammt á veg komin. Það þarf vart að taka fram að einhverjir aðrir menn sem telja sig verðugri (stjórmálaskríll) að því að þeir eru pöddur er sem smaræmd heild mynda ríkisskrímslið geti bannað fullorðnu fólki að nota eða setja í líkama sinn tiltekin efni er ógna tilvist yfirvaldsins og þrælaþjóðfélagsins.

Dómþolanna ber að frelsa úr ólöglegu varðhaldi. Dómurunum ber að refsa fyrir að slá ryki í augum almennings með þessum leikaraskap í þágu harðstjórnarinnar.


mbl.is Tíu ára fangelsi í Papeyjarmálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

LygaHörður mælir

Hið siðblinda illmenni, LygaHörður Jóhannesson sem sagði aðspurður um hvort Lögruglan hleraði síma VörubílaSturlu í fyrra, að lögruglan hleraði ekki síma fyrir minnháttar umfeðalagabrot. Hann vissi sem var að Íslendingar eru hálfvitar upp til hópa sem gleyptu við bullinu í honum. Þótt hann hefði rétt verið að enda ræðu um það hvað aðgerðir vörubílkstjóranna væru alvarleg brot sem réttlætu árásir og varnarúðun svokallaðra mannfjöldastjórnarsteymis er var svo nefnt þá.

Hann var sá sami sem afneitaði að stofnandi Saving Iceland væri veitt eftirför og sími hans hleraður. Þrátt fyrir að Ómar Ragnarsson hefði náð myndum af eftirförinni.

Málstaður bílsjtóranna var að mestu vondur en þeir fengu samúð eftir árásir górillugengjanna og ofbeldisbrjáluðu varðsvínanna

Rétt áðan var það staðfest á fréttum RUV að 90% íslendinga eru hálfvitar þar sem samkvæmt könnun treystir þessi prósenta lögrugunni. Þótt flestir fjölmðilamenn (lifandi ljósrtiunarvélar) starfi með lögruglunni sem hluti af lygavélinni má spyrja hvað þarf hún að ganga langt til að fólk átti sig á endurteknum afhjúpunum ofbeldissveita ríkisvaldsins. Þarf ekki einnig að draga ljósritunarvélarnar til ábyrgðar þegar byltingin verður.

Þessar aðgerðir gefa von um að ennþá sé til fólk með siðferðis og réttlætiskennd á Íslandi. Sjáið bara höll álskessunnar viðnjóðselgu. Þetta er vonandi bara byrjunin, viðvörun. Það er skylda okkar að fara inn og draga ræningjana út, Nei Hörður eins og félagar hans er algjörlega siðblindur enda varla hægt að starfa við berja á og ofsækja borgaranna án þess að vera illa innrættur.

Aðgerðir þessa fólks er eina ástæðan fyrir að það er ekki hægt að skammast sín algjörlega fyrir að vera Íslendingur.

Þegar lög eru ólög ber okkur skylda til að óhlýðnast þeim!!!


mbl.is Skrifuðu illvirki á húsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju fréttnæmt?

Afhveju er veri[ð að segja frá svona smámunum. Hvernig eyðir lögruglan skattfénu? Þetta staðfestir sjúkleika samfélagsins ef svona tittlingaskítur eru fréttir. Að lögruglan skuli voga sér að bregðast við. Aukum öryggi borgaranna. Leysum upp og fangelsum lögrugldallana.
mbl.is Vopnað rán í 11-11
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskt réttarkerfi og yfirvald bregst ekki sínum

Það er einstaklega þægileg öryggistilfinning að þrátt fyrir Afhjúpunarhrynuna eru ennþá flestar stoðir samfélagsins fyrirsjáanlegar.

Þrátt fyrir allt er loksins ástæða til að dást að ísilensku dómkerfi og réttlætiskerfi. Þar er brugðist fljótt við þegar brotaþolendur og minnimáttar eru beittir ranglæti. Jafnvel ofsóttir með hleypidómum. Einkalíf fólks er varið til hins ítrasta með ákveðni og staðfestu. Það er frumforsenda persónufrelsis að einkamál fólks séu vernduð fyrir hinu tilbúna almenningsáliti. Framhald 1: Eins og við þekkjum í vímuefnamálum þar sem grunaðir fá ætíð að njóta vafans og eru ekki valdir úr samkvæmt fordómum. Auðvitað kemur þetta almenningi ekkert við þótt hann þurfi að borga næstum óspurður. Framganga íslenskra dómstóla og sýslumanna (sem eðlilega þurfa að uppfylla þau skilyrði að vera annaðhvort framsækniur eða sjálfstæðir) í lögbannsmáli Kaupþings gegn RÚV hefur tekið af öll tvímæli um það að hér ríkir réttlæti og frelsi til einkalífs hins rótgróna lýðræðisríkis. Hér lifir óskert hið frjálsa einkalíf og ákvörðunarvald, sjálfstæði hinna fáu.

Enn og aftur. Til hamingju Ísland!!!


mbl.is Kaupþing fékk lögbann á RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framfaraskref

Hér er stigið mikið framfaraskref í aðgerðarfræðum. Auðvitað eiga þessir stórglæpamenn sem rændu landið og lýðinn ekki að vera óhultir neinstaðar. Að sjálfsögðu hefur ríkisvaldið brugðist í því að draga menn til ábyrgðar. Alls ekki sýnt umheiminum neina iðrun með því að hreinsa til. Þessvegna treystir engin utanaðkomani þessu siðblinda ranglætisríki er þrífst á stuðningi með þöglu samþykki ímyndaðrar en helsjúkrar þjóðar.

Á meðan Gerifinns og Guðmundarmál eru óuppgerð. Breiðuvíkurdrengir og fleiri stofnanir eins og heynrleysingjaskólinn er óbætt. Má ekki búast við miklu.

Auðvitað er engin ástæða til að treysta hinum ólánsömu Íslendingar sem keyrðu áfram á lánum. Nema ef sýndarmennska ESB klerka sem hafa fagurgala sem starfslýsingu. Þeir valda manni ógleði þegar þeir blaðra um rótgróna lýðræðishefð á þessu skeri á eftir slagorðunum um gagnsæi og lýðræðislegt ferli ESB.
Nema ef til vill eru til einfeldingarsem aðeins hafa lesið landkynningarþvaðrið er Ísland hefur mokað út og dreift um heimsbyggðina í vönduðum umbúðum s.l. ár .

Því Lýðveldið Ísland er glæparíki og nú vitum við afhverju ekkert var gert í fyrstu þrátt fyrir sýndarmennskuna nú. Kárahnjúkar og álversæðiði áttu stóran þátt á í Hruninu (blessaða) og á meðan svokallað réttarkerfi (ranglætisiðnaður ríkisvaldsins) ræður ekki við neitt þar sem það er deild í glæpasamtökunum er kalla sig Lýðveldið Ísland. Verður fólk að grípa til sinna ráða, einfaldlega til þess að halda einhverjum sönsum og lágmarks sjálfsvirðingu.

Nú er enn frekar orðið ljóst að Ísland meikar ekki einu sinni monnípeninga á þessu hneyksli eins og margir bentu á áður. Hin síþreytta Icesave síbylja hægri flokkanna, Flokksins, Framsóknarforaðsins og Smáborgarahreyfingarinnar er aðeins smámál miðað við stóriðjusölu viðbjóðinn. Allt í nafni atvinnu fyrir þjóð sem skilgreinir sig samkvæmt því starfi sem hver gegnir.

Eva Joly mælti réttilega er hún benti á að lögin og réttarkerfið er hannað fyrir hina ríku, m.a. til að vernda ránsfeng þeirra og rányrkju. Viðhalda siðblindu ranglætisiðnaðarins. Mannhaturs kerfi sem er svo ósvífið að kalla sig réttarkerfi og réttarríki. Því miður voru sumir hinna siðblindu sjálfsblekkingarlendingar að heyra þetta í fyrsta sinn er Joly impraði á þessari alkunnu staðreynd.

Þótt hugsjónir ,,Saving Iceland" um að bjarga Íslandi frá Íslendingum eða Íslendingum frá sjálfum sér hljómi draumkenndar þar sem a.m.k. íslenska lýðveldinu er ekki viðbjargandi. Þá bera að taka það fram að náttúruvernd gengur frekar út á að bjarga mannkyninu og skapa því mannsæmandi líf í friðsamlegri sambúð og jafnvægi við ytri nátttúruna er umlykur okkur jafnt sem innri náttúru mannins. Náttúra Jarðar verður fljót að jafna sig þegar mannkynið er horfið.

Að venju bera bloggheimar vitni um heimsku margra er einblína á smávægilegar skemmdir á dauðum hlutum við aðgerðirnar (svokölluðum eignum sem engin á en almenningur borgar fyrir) en samtímis horfa þeir framhjá hinum gífurlegu hryðjuverkum sem náttúruspjöll þungaiðnaðirns eru. Þar veldur m.a. hin öfgafulla efnishyggja fyritækjaræðisins og veraldlegarar þjóðríkistrúar. Tveir útvarpsögu þjóðarsáls spekingar komu eitt sinn til SilfurEgils og reyndu í sniðugheitum sínum að flissa að fólki sem berðist fyrir málstað hinnar ,,dauðu náttúru" gegn atvinnuhagsmunum hinna lifandi vélþræla. Allt fyrir atið. Hvað er meira lifandi en náttúran? Er þetta liðið sem afgreiðir allt sem það skilur ekki og ekki er hægt að sanna efnislegan hátt ,,yfirnáttúrulegt."

En þessar aðgerðir eru stórkostlegt vakningarkall á þessum ömurlegu tímum afvegaleiðingar og sviðsettra sjálfsblekkingar. Hér er um sanna samfélagsþjónustu að ræða sem framkvæmd er í óeigingjörnu sjálboðaliðstarfi. Ef það eru útlendingar meðal SI í ár þá eru þið hinr einu sönnu Íslandsvinir. Upp með orðurnar áður en viðskiptafulltrúaembætti Íslands verður lagt niður. Þessum vinarhug bera að fagna. Við þurfum á hjálp að halda við komandi hreinsanir.


mbl.is Dyr límdar aftur og málningu slett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grunnhyggnir andstæðingar

Þetta er stórkostlegt  áróðurstækifæri fyrir ESB sinna. Andstæðingar  ESB á Akureyri virðast vera bæði grunnhyggnir og illa haldnir af húmorsleysi. Það þarf nokkur lágt gáfnafar til að skilja hvorki launhæðni né kaldhæðni. Eða eru þeir eru bara svona blindir af þjóðrembingnum. En verst af öllu, þeir skilja ekki listköpun sín eigin manns.

Ég held að það væri skaðlaust að skilja Akureyri eftir þegar Ísland gengur í ESB 


mbl.is Andstæðingar ESB mótmæla listaverki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú fá Hollendingar það staðfest að Ísland er sjóræningaríki

Það þarf ekki annað en skanna yfr skjölin úr Geirfinns- og Guðmundarmálinu til að sjá að Ísland er ekki réttarríki heldur er hér rekinn óréttlætis iðnaður eins og víðar.

Héraðsdómur hefur úrskurðað að það hafi verið réttlætanlegt þegar hervædd Landhelgisgæsla Georgs Búningablætis og geðsjúklingarnir í sérsveit BB rændu Hollendingi út á rúsmjó fyrir utan lögsögu glæparíkisins. Þar stefndi einn vopnaði geðsjúklingurinn í þjónustu ríkisvaldsins sér og öðrum í stórhættu með amrískum Hollywood stunt æfingum. Gott að vita af svona sjúklingum vopnuðum í búningum ríkisins á almannfæri, eða hitt þó.

Við réttarhöldin sem voru sett á svið á mettíma á meðan stórglæpamenn spóka sig og labba lausir. Sýndu íslensku þáttakendurnir sitt venjuelga eðli. En Hollenski kaupsýslumaðurinn er augljóslega atvinnumaður því hann hefur neitað að tjá sig um málið. Þannig á haga sér gegn ólöglegum aðgerðum ríkisvaldsins. Hann kom heldur betur með krók á móti bragð með þvíi að krefjast frávísunar vegna lögsöguleysis yfirvalda. Auðvitað úrskurðaði héraðsdómur í þágu ríkisvaldsins í þessu prófmáli. Í þokkabót fær Hollendingurinn ekki að áfrýja úrkurðinum til svokallaðs Hæstaréttar sem ónefndir kaupsýslumenn fengu að gera æ ofan í æ.

Þetta mál var spaugileg sýning þegar málgagn valdstjórnarinnar nitaði leiðara til að sýna fram á að þessi aðgerð sýndi réttmæti þess að ofsóknarbrjálæði BB amríkaniseraði og hervæddi lögrugluna. PR deildin gerði mikið úr atvikinu með því að mæra árangur ruglunnar í fjölmiðlum með blaðamannafundum, grafík, myndrænni uppsetningu og annari lygaþvælu. Þetta var liður í ímyndunarherferðinni eftir niðurlæginguna í löggulátunum í janúar. Meir að segja danski flugherinn fékk að fljóta með og varðskipi var breytt í fangelsi. Það var afar ósmekklegt miðað við sögu Gæslunnar og ímynd meðal þjóðarinnar.

En viti menn, eins og venjulega hafði þetta ekkert með rannsóknarvinnu lögruglunnar að gera. Einhverjir sjómenn kjöftuðu. Vegna þess að bjánarnir áttuðu sig ekki á því að lítið var um skútuferðir á þessum árstíma. Sama gerðist á einhverjum austfirðinum þegar Íslendingarnir mættu með gúmmíbát án sannfærandi lygaskýringar.

Þetta er bara eitt dæmi um sviðsetningu sýndarveruleika, spunaflækjunets íslenska valdakerfisins Þar sem fjölmiðlar, lögrugla og réttarkerfi koma við sögu. Of mörg sjónarhorn eru ennþá tabú. Það þarf ekki meira en kíkja í umfjöllun erlendra dagblaða (sem flest eru ekki til fyrirmyndar) um ýmis mál til að átta sig á að hér er of margt sem ekki má nefna.

Var einhver að tala um þrískiptingu valds og fjórða valdið. En með tilliti til nýjustu væluherferð lögruglunnar. HVAÐ KOSTAÐI ÞESSI AÐGERÐ?


mbl.is Frávísunarkröfu hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankabjánarnir eru hryðjuverkamenn

Hvernig stendur á því að Íslendingar eru ennþá að væla yfir viðbrögðum Breta? Ekki furða að nágrannaþjóðirnar líti á þessa þjóð sem ómerkilega aumingja. Viðbrögð Breta voru þau einu réttu við hryðjuverkum íslenskra bankabjána og fjárfestingarfífla. Glæpaverkin sem þeir frömdu með stuðningi ríkisvalds sem er ekkert anað en glæpasamtök.

Indefence undirskriftarlistinn sýndi að tugi þúsunda Íslendinga sem skrifuðu undir eru siðblind fífl.

Að þeim ætti reiðin að beinast en ekki þeim þjóðum sem brugðust rétt við. En Íslendingar eru m.a. þekktir fyrir að snúa öllu á haus eins hérlend umræða ber vott um.
En það er ekki nóg með að afneitunin og vælið haldi áfram. Haarde gengur ennþá laus og glæpaskríllinn er ennþá ósnertur með fulltrúa sína í svokölluðum skilanefndum.
Ísland hefur tekið af öll tvímæli.
Ísland er hryðjuverkaríki.


mbl.is Fjallað um reiði Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kunna Íslendingar ekki að skammast sín?


Arfleifð sjálfstæðisbaráttunar, þjóðremban hefur lengi flækst fyrir mörgum Íslendingum. Þessi blanda inniheldur líka undirlægjuhátt þrælasiðferðis og hjarðmennsku er sýnir sig í undirgefni og smjaðri við yfirvöld og útlendinga.

Annaðhvort eru útlendingar í flestu fremri og færa góðar gjafir í þjóðarbúið eins og stóriðjur og fyritækjavæðingu. Eins og þegar auðhringar geta lagt undir sig heilu byggðarlögin og náð áhrifum með því að smjúga inn í flest svið smásamfélaga. Orðið ómissandi eins og Kaninn var á Suðurnesjum.

Stór hluti þjóðarinnar aðhyllist ennþá fjöldamenningu Kana er a.m.k.tvö innlend Kanasjónvörp viðhalda. Sá sem þetta ritar er feginn, finnur fyrir létti næstum því hvern einasta dagyfir því hafa litla hugmynd um hver sé Jay Leno og sjónvarpsstjörnur hversdagsjónvarpsins vestanhafs o.s.frv. Þessa vitneskju úr áhrifamiklum dægurheimnum eru krakkarnir á auglýsingasneplunum dugleg að kynna og birta. Því er ekki að neita að það gefur fúlum fauskum (Vona að ég hljómi ekki eins og Thor 1958) vissa vellíðunartilfinningu að þjást af þekkingarskorti um þennan ríkjandi hliðarheim. Algjör fáfræðin veitir fullvissu um að vonlaust er að setja sig inní hið létta skemmtiefni þar sem það skortir tíma til að byrja frá grunni.

Á hinn veginn er hin sjúklega tortyggni gagnvart öllu útlendu, sérstaklega alþjóðasamtökum og ríkjabandalögum. Til að spara orð vísa ég til viðhorfa Guðfríðar Lilju þegar hún talar um ,,landið okkar" á þingi. Það er orðræða hinnar ungmennafélagísku sósíalísku þjóðernishyggju sem fylgismenn hennar kalla oft þjóðfrelsisbaráttu. Svona hliðstætt Viet Cong og andspyrnuhreyfinga gamla nýlendutímans.

En aftur að þjóðrembu Íslendinga, þessara skringilegu blöndu sem inniheldur örugglega minnimáttarkennd sem undirstöðu í uppskriftinni.

Nú ríkir æsingur og hneykslan, Icesave samningur og ESB umsókn virðist í uppnámi vegna réttmætrar áminningar hollenska utanríkisráðherrans í símtali við hinn íslenska kollega sinn. Jafnt þjóðrembu sem útrásarkórinn gamli (Ólafur Arnarsson, málpípa þeirra) grenja og hrópa, höfða til lægstu þjóðernissinnuðu skyni skroppina hvata. Vondu Evrumennin, gömlu nýlenduveldin, hóta og kúga hið smásaklausa Ísland.

Sökudólgarnir vonast til að bjarga sér með skrumi. Og garga núna um landráð og landssölu.

Hollenski utanríkisráðherrann var ekkert sérstaklega að fela símtalið en fær bágt fyrir hér á landi að koma svona upp um sig. Þótt ástæðan gæti verið pólitísk hylli með því að hugga þá Hollendinga er kalla á hefnd. Þá skilst mér að Í Hollandi hefur orðið gagnsæi og opin stjórnsýsla einhverja þýðingu. Líklega hefur hinni hollenski Twitter notandi ekki gert sér grein fyrir þeim frumstæðu hvötum og skotgrafahernaði er ríkir í pólitískri umræðu á Íslandi.

Á sama tíma hefur enn frekar komið í ljós varðandi einkavæðingu bankanna að Ísland er glæparíki sem er gegnsósa af spillingu. Hér sitja ræningjar sitt hvorum megin við hvert borð. Því er seinagangur og hik Haarde stjórnarinnar og núverandi stjórnvalda við að rannsaka risasakamálið Ísland, skiljanlegur.

Það má vel vera og er alls ekki ólíklegt að Icesave samningurinn sé vondur samningur. Aðalafsökunin sem Íslendingar hafa til að biðjast miskunnar er hin mikla borgunar og vaxtarbyrði miðað við hina margfrægu höfðatölu. ,,Per capita" sem hingað til hefur verið beitt í landkynningar ,,orðræðunni" á þveröfugan hátt.

Það er ennþá erfitt að átta sig a Icesavesamningnum þar sem lögfræðiálit og umsagnir sérfræðinga virðast fara eftir pólitískum flokkslínum.
En margt hljómar undarlega, afhverju Haarde stjórnin þorði ekki að reyna á dómstólaleiðina og lagaleg óvissa t.d.
Vilhjálmi Bjarnason tókst að skýra málið sem siðferðislega og lagalega skyldu til að forðast einangrun og öðlast aftur eitthvert traust. Þegar hann var beðinn um að útskýra á mannamáli í Speglinum á RUV.

Síðan en ekki síst er reiðin réttlát þegar gerendurnir og ráðamennirnir er gerðu þeim þetta fært, ganga lausir og spóka sig eins og ekkert sé á almannfæri.

En því er ekki hægt að neita að meirihlutinn kaus þetta yfir sig og þið verðið að borga skuldir ykkar. Þó það tíðkist ekki hérlendis. Fáfræði er engin afsökun

Hollendingar eru í fullum rétti með þessa áminningu. Holland er siðmenntað land miðað við Ísland. Þeir urðu einna fyrstir með borgarastéttina og alþjoðlega verslun frá Evrópu. Þeir hafa praktískt vit á pragmatík og umburðarlyndi á meðan það borgar sig. Kalvinisminn hefur gert suma þeirra leiðinlega en kosturinn er að fjáðir berast ekki á.

Þeir gera sig líklega grein fyrir því eins og flestir að Íslendingar eru skúrkarnir í þessu máli. Heiminum hlýtur að vera orðið kunnugt hvurslags siðleysingjar, svindlarar og þjófar, Íslendingar eru. Þótt þeir líti á sig sem fórnarlömb eins og Þjóðverjar forðum.

Þótt ég sé andvígur refsingum þá á glæparíkið Ísland og þeir sem styðja það og eru samsekir með þöglu samþykkir, skilið ærlega hirtingu.


mbl.is Telja að ljúka verði Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er fólk fífl? Enn einu sinni.

Ekki er hægt annað fyrir þá sem hafa kynnt sér þingræðisstjórnmál en að vera ætíð í srjórnarandstöðu. En fylgisaukning Hrunflokkana minnir á að flest fólk er fífl. Þegar að flokkapólitíks lýðræði kemur. Fulltrúarræði hefur engu þýðingu án upplýsingar.
Getur verið rétt að láta fólk taka próf til að fá kosningarétt? Annars sáu allir hugsandi menn þetta fyrir. Því kosningar eru helsta sjónarspil Stýringar Valdsins.
Auk þess eru hendurnar bundnar með IMF.
mbl.is Fylgi stjórnarflokkanna minnkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband